Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. apríl 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Undanúrslit Lengjubikarsins fara fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Báðir undanúrslitaleikirnir í A-deild Lengjubikars karla fara fram í dag en um er að ræða tvo hörkuleiki.

KR og FH mætast á KR-velli klukkan 15:00 í fyrri undanúrslitaleik dagsins en bæði lið hafa verið að gera frábæra hluti í Lengjubikarnum til þessa.

Þór fær þá Breiðablik í heimsókn á Akureyri en sá leikur hefst klukkan 16:00. Þórsarar hafa heldur betur komið á óvart í Lengjubikarnum í ár en frammistaða þeirra hefur verið mögnuð og sama má segja um frammistöðu Blika.

Leikir dagsins:
15:00 KR - FH (KR-völlur)
16:00 Þór - Breiðablik (Boginn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner