þri 21. apríl 2015 05:55
Hafliði Breiðfjörð
Leikir dagsins hér heima - FH og Fylkir i Kaplakrika
FH og Fylkir mætast á grasi í dag.
FH og Fylkir mætast á grasi í dag.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Tveir leikir fara fram í Lengjubikar kvenna í dag og þá eru liðin einnig að spila æfingaleiki fyrir Íslandsmótið sem hefst eftir mánaðarmótin.

Karlalið FH og Fylkis mætast þannig í fyrsta grasleik liðanna í ár en leikurinn fer fram á efsta grasinu í Kaplakrika. ÍBV og Valur áttu að mætast í Þorlákshöfn á grasi en þeim leik var frestað vegna vallarskilyrða.

Þá mætast kvennalið Selfoss og ÍBV á gervigrasinu á Selfossi og Fram og Álftanes mætast svo í C-deild Lengjubikars kvenna.

Æfingaleikur karla:
16:30 ÍBV - Valur Þorlákshafnarvöllur) - FRESTAÐ VEGNA VALLARSKILYRÐA
18:00 FH - Fylkir (Kaplakriki - efsta gras)

Lengjubikar kvenna A deild
18:00 Selfoss-ÍBV (JÁVERK-völlurinn)

Lengjubikar kvenna C deild, riðill 2
20:00 Fram-Álftanes (Framvöllur)

Veistu um æfingaleiki framundan?
Auk ofangreindra leikja gæti verið um einhverja æfingaleiki að ræða sem við vitum ekki um. Við hvetjum fólk til að senda okkur ábendingar um æfingaleiki sem framundan eru og við munum koma þeim á framfæri morgun þess dags sem leikurinn fer fram. Sendið slíkar ábendingar á [email protected].
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner