Enska knattspyrnusambandið gerir sig að aðhlátursefni með því að láta Jon Moss dæma bikarúrslitaleik Arsenal og Aston Villa í næsta mánuði. Þetta segir Mark Halsey, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni.
Moss var valinn til að vera með flautuna á Wembley og segir Halsey ákvörðunina vera algjört grín.
Moss var valinn til að vera með flautuna á Wembley og segir Halsey ákvörðunina vera algjört grín.
„Þetta er með hreinum ólíkindum. Jon Moss er búinn að gera of mörg stór mistök á þessu tímabili. Um síðustu helgi missti hann af tveimur klárum vítaspyrnum. Við verðum aðhlátursefni um allan heim," segir Halsey.
„Það er alveg klárt mál að Mark Clattenburg á að dæma leikinn. Hann er okkar besti dómari og sýnir hæfileika sína á stóra sviðinu trekk í trekk. Sjáið til dæmis frammistöðu hans í Meistaradeildinni í leik PSG og Barcelona. Hann fékk réttilega mikið lof."
Halsey segist sannfærður um að það er pólitík í þessu vali á Jon Moss og Clattenburg sé ekki vinsæll hjá æðstu mönnum sambandsins.
Athugasemdir