Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. apríl 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Eyjabita - Aron Þrándar velur sitt lið
Draumalið Arons.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Draumalið Arons. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Aron Elís Þrándarson.
Aron Elís Þrándarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita. Keppni í Pepsi-deild karla hefst sunnudaginn 30. apríl og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Aron Elís Þrándarson, leikmaður Álasund, er búinn að stilla upp liði fyrir sumarið. Hér að neðan má sjá lið hans.



Markmaður
Stefán Logi - Held að KR eigi eftir að halda oftast hreinu i sumar.

Vörn
Böddi Löpp - Með fyrstu mönnum á blað, skilar alltaf stoðsendingum. Reyndar kominn tími til að hann drulli einhverjum mörkum inn
Kassim - Skorar alltaf helling af mörkum, búinn að tala við Bödda og hann segist ætla sjá til þess að hann hætti að safna spjöldum og ráðist ekki á dómarana.
Davið Kristjan - Hræódýr, elskar að sækja og er að fara skila stigum

Miðja
Siggi Lár (C)- Bestur í deildinni. Verður 100% leikmaður ársins.
Dion Acoff - Pace
Höskuldur: Búinn að vera spila vel á pre seasoninu, hló bara þegar ég sá að hann var á 7m. Bargain.
Arnþór Ingi: Arnþór “Seinni bylgja” Kristinsson er einn af vanmetnustu mönnum deildarinnar. Heldur uppi stemningunni i klefanum og deliverar á vellinum.

Framherjar
Hólmbert - Er að fara raða mörkum i sumar
Flóki - Ef hann skorar ekki 15+ þá verð ég fyrir vonbrigðum.
Tokic - Mun vaða í færum, góður að slútta og þefar uppi mörk.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Eyjabita - Tómas Þór velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Kristinn Freyr velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Viðar Ari velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner