Leik Skalborg SK og KB81 Álaborg í fjórðu deildinni í Álaborg í Danmörku var hætt á mánudag eftir afar óvenjulega uppákomu.
Fimm aðilar í hettupeysum komu þá hlaupandi inn á vopnaðir hnífum og réðust á leikmann KB 81.
Leikmaðurinn náði að hlaupa inn í klefa og forðast mennina sem voru vopnaðir. Lögreglan mætti á svæðið en þá voru hnífamennirnir á bak og burt.

Leikmaðurinn sem reynt var að ráðast á vildi ekkert tjá sig um málið við lögreglu.
Leiknum var aflýst á mánudag og færður yfir á þriðjudag. Þá mætti KB81 ekki til leiks en leikmenn liðsins voru ekki tilbúnir að spila eftir atburðina daginn áður.
Leikmaðurinn sem ráðist var á hefur ákveðið að hætta í liði KB81 eftir atvikið á mánudag en talið er að árásin á hann tengist átökum hjá klíkum í Álaborg.
Athugasemdir