Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. apríl 2017 06:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reynir S. fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)
Reynir S. stykir sig fyrir 3. deildina.
Reynir S. stykir sig fyrir 3. deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði hefur fengið liðsstyrk fyrir 3. deildina í sumar. Liðið hefur gengið frá samningum við tvo erlenda leikmenn.

Devonte Daryll Delroy Small er miðjumaður sem kemur frá Bandaríkjunum.

Hinn leikmaðurinn sem félagið er búið að semja við heitir Jonathan Mark Faerber og er 29 ára gamall ástralskur markvörður.

Hann lék síðast með TSV Buch í Þýskalandi, en kemur til með að spila í Sandgerði í sumar og verja mark Reynis.

Reynir lenti um miðja deild í 3. deildinni síðasta sumar. Stefnan er sett á að vera ofar núna, það er klárt mál!
Athugasemdir
banner
banner
banner