Maðurinn sem sprengdi sprengju við liðsrútu Borussia Dortmund í síðustu viku ætlaði að reyna að græða pening á því.
Hinn 28 ára gamli Sergej W hefur verið ákærður fyrir að standa á bakvið sprenginguna.
Sprengjan var sprengd við liðsrútu Borussia Dortmund fyrir fyrri leikinn gegn Monaco í Meistaradeildinni en Marc Bartra handleggsbrotnaði við sprenginguna og var fluttur á sjúkrahús.
Í kjölfarið var leik Dortmund og Monaco frestað um einn dag.

Upphaflega var talið að um hryðjuverkaárás væri að ræða en nú lítur út fyrir að Sergej hafi staðið á bakvið sprenginguna og ætlað að græða pening í kjölfarið.
Sergej tók lán upp á níu milljónir króna og tók stöðu gegn hlutabréfaverði Dortmund. Hann tippaði þannig á að hlutabréfin myndu hrynja í félaginu eftir sprenginguna.
Sergej fylgdist sjálfur með sprengingunni úr hótelherbergi en hann hefur nú verið handtekinn og ákærður.
Athugasemdir