Þrítugasta umferð þýsku úrvalsdeildarinnar verður spiluð um helgina og hefst hún í kvöld með leik Köln og Hoffenheim.
Bayern Munchen sem datt út úr Meistaradeild Evrópu í vikunni mætir Mainz á morgun og þá heimsækja liðsfélagar Alfreðs Finnbogasonar í Augsburg lið Frankfurt en Alfreð verður ekki með vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðustu umferð.
Í síðasta leik morgundagsins fá Borussia M'gladbach stórlið Dortmund í heimsókn.
Umferðin klárast á sunnudag með tveimur leikjum. Annars vegar mætast Freiburg og Leverkusen og hins vegar heimsækir spútniklið Leipzig stórlið Schalke.

Föstudagur 21. apríl
18:30 Köln - Hoffenheim
Laugardagur 22. apríl
13:30 Bayern Munchen - Mainz (Stöð 2 Sport)
13:30 Frankfurt - Augsburg (Stöð 2 Sport 3)
13:30 Ingolstadt - Werder Bremen
13:30 Hamburg - Darmstadt
13:30 Hertha Berlin - Wolfsburg
16:30 Borussia M'gladbach - Dortmund
Sunnudagur 23. apríl
13:30 Freiburg - Leverkusen
15:30 Schalke - Leipzig
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir