Didier Drogba segist ekki vera hræddur við kynþáttaníð og ætlar ekki að láta lítinn hóp einstaklinga hrekja sig frá Tyrklandi.
Drogba heimsótti hús íþróttamálaráðherra Tyrklands, Suat Kilic, í kjölfar atviks í leik Galatasaray gegn Fenerbahce þar sem bönunum var veifað að Drogba og Emmanuel Eboue af stuðningsmönnum Fenerbahce.

,,Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem eitthvað svona gerist, ég er mjög ánægður í Tyrklandi og ætla mér ekki að fara neitt," sagði Drogba við Hurriyet Daily News.
Kilic tók undir orð Drogba og sagði kynþáttafordóma ekki eiga heima í knattspyrnuheiminum.
,,Þegar ég var að horfa á leikinn datt mér ekki einu sinni í hug að bananarnir væru tákn um kynþáttaníð," sagði Kilic.
,,Ég hélt að þeir myndu bara kasta bönununum inn á völlinn eins og hverjum öðrum aðskotahlut. Þessi hegðun gerir mig mjög sorgmæddan."