Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Ferguson knattspyrnustjóri ársins
Sir Alex Ferguson hefur verið nefndur knattspyrnustjóri ársins af samtökum knattspyrnustjóra á Englandi.

Haldinn var kvöldverður þar sem Ferguson fékk verðlaunin afhend og sagðist vera ánægður með að hafa endað ferilinn á að hljóta þessi verðlaun.

,,Þetta hefur allt verið mjög yfirþyrmandi, félagið hefur verið mér frábært og ég vil óska West Brom til hamingju með hvernig þeir höndluðu leikinn gegn okkur á sunnudaginn," sagði Ferguson

,,Ég er glaður að þessu sé öllu lokið því það hefur verið brjálað mikið að gera og það er gríðarlega mikil vinna bakvið þetta.

,,Mér finnst að Steve Clarke (stjóri West Brom) eigi skilið verðlaun því hvaða lið sem nær að skora fimm mörk gegn United á skilið verðlaun."

Slapp
banner