Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 18:00
Elvar Geir Magnússon
Fiorentina býst við að missa Jovetic
Andrea Della Valle, forseti Fiorentina, segir að það sé mjög erfitt að kyngja því að hafa misst af þriðja sæti ítölsku deildarinnar. Liðið var nálægt því að fá sæti í Meistradeildinni en á lokamínútum tímabilsins náði AC Milan að skjótast upp í þriðja sætið

„Ég var brjálaður á sunnudaginn. Þetta voru ólýsanleg vonbrigði. Liðið átti skilið að komast í deildina, við spiluðum besta fótboltann í deildinni," segir Della Valle sem þarf að berjast til að halda stjörnununum David Pizarro og Stevan Jovetic.

„Pizarro var alveg eyðilagður yfir þessari niðurstöðu. Ég vona að við höldum okkar liði svo við getum gert enn betur á næsta tímabili. Vonandi getum við stigið næsta skref og komist í Meistaradeildina."

„Jovetic verður að ákveða hvað hann vill gera. Ef hann vill færa sig um set er mikilvægt að við finnum leiðir til að fylla hans skarð. Í hreinskilni sagt er mjög ólíklegt að hann verði áfram hjá okkur."

Stevan Jovetic er 23 ára sóknarmaður frá Svartfjallalandi sem meðal annars hefur verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
banner
banner