Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Kayserispor í Tyrklandi, verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu þann 7. júní næstkomandi. Grétar hefur verið að glíma við hnémeiðsli síðan í nóvember í fyrra en hann vonast til að verða klár í slaginn þegar næsta tímabil hefst í Tyrklandi í ágúst.
,,Ég fór í aðgerð í janúar og satt besta að segja þá held ég að þeir hafi ekki leitað alveg nógu vel að því hvað var að. Endurhæfingin hefur gengið mjög hægt og það er ekki alveg vitað hvað er að," sagði Grétar Rafn við Fótbolta.net í dag.
,,Það versta er að þetta er ekki tengt gömlu hnémeiðslunum hjá mér. Þetta er eitthvað nýtt sem ég þekki ekki inn. Það er stundum erfitt að vera í óvissunni og ég er einstaklega óþolinmóður þegar læknarnir geta ekki sagt mér hvað er að."
Championship manager fílingur:
Grétar býst við að vera áfram frá keppni næstu vikurnar en hann hefur ekki náð að fá mikla hjálp við meiðslunum í Tyrklandi.
,,Ég reikna með að vera frá keppni í allavega tvo mánuði í viðbót. Það er mjög erfitt að vera meiddur þarna. Það er Championship Manager fílingur, ef einhver leikmaður er meiddur þá er hann bara meiddur. Meðan hann er meiddur þá er ekkert gert og síðan einn daginn vaknar leikmaðurinn og er ekki meiddur, þannig er fílingurinn hérna."
,,Þetta er önnur menning og öðruvísi. Ég vissi alltaf að það yrði erfitt að vera meiddur. Svona meiðsli hefðu kannski ekki takið jafn langan tíma annars staðar en það er ekkert hægt að breyta því. Vonandi hitti ég rétta fólkið í sumar og kemst aftur á skrið."
Fer til sérfræðings í Kanada:
Grétar er núna á leið til sérfræðinga sem mun reyna að finna út hver rót vandans er.
,,Ég reikna með að fara til Kanada á næstu dögum og hitta sérfræðing sem telur sig geta hjálpað. Ég skoða síðan hvaða möguleika ég hef, það er oft gott að láta nokkur augu skoða þetta. Ef að allt þrýtur þá mun ég kíkja á Sveinbjörn (Brandsson) lækni."
Landsleikirnir gulrót:
Ísland mætir Slóveníu í undankeppni HM eftir tæpar tvær vikur og Grétar er afar svekktur að missa af þeim leik.
,,Markmiðið hjá mér var að ná tveimur leikjum í Tyrklandi áður en ég kæmi í landsleikinn. Þetta er leikur sem hefur gífurlega mikla þýðingu fyrir okkur. Þetta er spennandi leikur og þetta er í fyrsta skipti sem svona mikið er undir í sumarleik. Vonandi klára strákarnir þetta enda tel ég okkur vera með mun sterkara lið en Slóvenía."
,,Ég verð vonandi kominn í stand fyrir næstu landsleiki. Landsleikirnir fjórir eftir Slóveníu leikinn eru þessi stóra gulrót sem heldur manni gangandi í endurhæfingunni. Ég hef sterka trú á að þetta sé hægt og að landsliðið geti virkilega komist á stórmót. Ef allir hafa sömu trú og við spilum okkar leik þá eigum við stóran möguleika að að ná þessari gulrót og ég vonast til að vera með í því."
Ánægður í Tyrklandi:
Grétar Rafn gekk í raðir Kayserispor í fyrrasumar og hann kann vel við lífið í Tyrklandi. Grétar á ár eftir af samningi sínum og reiknar með að leika áfram með Kayserispor næsta vetur.
,,Fyrir utan það að vera meiddur þá er frábært að vera þarna. Aðstæður eru góðar, veðrið gott og við erum með frábæran þjálfara sem og virkilega gott og sterkt lið. Ég vissi alltaf að liðið myndi enda ofarlega og við náðum fimmta sætinu. Ef við hefðum fengið 2-3 leiki í viðbót þá hefðum við endað ennþá ofar. Eins og staðan er þá verð ég þarna áfram. Ég hef gaman að fótboltanum og stemningunni í kringum hann. Ég ætla að reyna að ná mér góðum í sumar og síðan sé ég hvað gerist," sagði Grétar.


