Manchester City og New York Yankees hafda tekið höndum saman og stofnað knattspyrnulið sem ber heitið New York FC. Árið 2015 mun liðið hefja þátttöku í MLS-deildinni í Bandaríkjunum og verður 20. lið deildarinnar.
Sheikh Mansour, hinn moldríki eigandi Manchester City, verður aðaleigandi bandaríska félagsins. MLS-deildin hafði gefið það út að hún vildi fá keppinauta fyrir New York Red Bulls í borgina
Einkennislitur New York FC verður ljósblár líkt og hjá Manchester City og er líklegt að samstarf milli félagana verði mjög náið, liðin leika vináttuleik árlega og City lána leikmenn til NYFC.




