Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 12:45
Magnús Már Einarsson
Ólafur Páll: Sex stiga leikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Blikarnir eru með frábært lið og við líka. Þeir eru með unga, góða og efnilega fótboltamenn og þetta verður hörkuleikur. Mér sýnist Kópavogsvöllur vera einn af flottustu völlunum á landinum, hann lítur út fyrir að vera iðagrænn, þannig að það verður gaman að mæta þangað," sagði Ólafur Páll Snorrason leikmaður FH við Fótbolta.net í dag en liðið heimsækir Breiðablik í Pepsi-deildinni klukkan 20:00 í kvöld.

FH er með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Pepsi-deildinni en liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍBV í síðasta leik.

,,Ég hefði viljað fá meira út úr leiknum á móti Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjarliðið er hörkugott en við stóðum okkur ekki nógu vel í þeim leik að mínu mati. Jafntefli varð niðurstaðan og úr því sem komið var þá var það allt í lagi. Ég hefði samt viljað fá sigur á heimavelli þar sem að við stefnum augljóslega á að vinna alla heimaleiki."

KR er á toppnum með tólf stig eftir fjóra leiki og Ólafur Páll segir mikilvægt fyrir önnur lið að ná að fylgja þeim eftir.

,,Það er gríðarlega mikilvægt að missa þá ekki of langt á undan. Hvort sem það er FH, Breiðablik, Stjarnan, Valur, Vestmannaeyjar eða þessi lið sem ætla að berjast á toppnum."

,,Það er ekki hægt að neita því að KR-ingar líti gríðarlega vel út og það er hægt að segja að þetta sé sex stiga leikur í kvöld fyrir FH og Breiðablik. Við lítum á þetta sem gríðarlega mikilvægan leik."

,,Þetta eru lið sem ætla að berjast um toppsætið og það er mikilvægt að taka stig út úr þessum leikjum. Við lítum þannig á að við verðum að berjast við Breiðablik fram undir lok september um þessi toppsæti þannig að þetta er gríðarlega mikilvægur leikur,"
sagði Ólafur Páll að lokum.

Leikir kvöldsins:
19:15 ÍA - Fram (Norðurálsvöllurinn)
19:15 Stjarnan - Valur (Samsung völlurinn)
20:00 Breiðablik - FH (Kópavogsvöllur)
Slapp
banner
banner