Síðasta leik fjórðu umferðar Pepsi-deildar karla var rétt í þessu að ljúka, en FH marði sigur á Breiðablik.
Emil Pálsson sá til þess að FH sótti þrjú stig á Kópavogsvelli. Björn Daníel átti þá frábæra sendingu inn fyrir á Emil sem átti laglegt skot í fjærhornið.
Breiðablik fékk vítaspyrnu undir lok leiks, en Róbert Örn Óskarsson varði þá meistaralega frá Árna Vilhjálmssyni sem hafði komið inn á sem varamaður stuttu áður.
Úrslit og markaskorarar:
Breiðablik 0-1 FH
0-1 Emil Pálsson ('16 )


