Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Roberto Carlos að taka við félagi í Tyrklandi
Roberto Carlos, fyrrverandi vinstri bakvörður brasilíska landsliðsins, Real Madrid og Inter, verður nýr þjálfari Sivasspor ef marka má orð forseta félagsins.

Carlos er 40 ára og starfar í stjórn rússneska félagsins Anzhi Makhachkala þar sem hann lauk ferli sínum sem leikmaður.

Frá þessu greinir Mecnun Odyakmaz, forseti tyrkneska ofurdeildarfélagsins Sivasspor, og segir að viðræðunum við Carlos sé að ljúka.

,,Við eigum í alvarlegum samræðum við Roberto Carlos," sagði Odyakmaz við fréttamiðilinn Ankara Haber.

,,Fundirnir hafa verið jákvæðir og mun þetta allt skýrast fullkomlega á næstu tveimur dögum."

Ozkan Dogan, umboðsmaður Carlos, er viss um að samkomulag náist og Carlos verði þjálfari liðs í efstu deild Tyrklands, en Sivasspor lauk keppni í tólfta sæti af átján á nýafstaðnu tímabili.
Slapp
banner
banner