Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 20:32
Brynjar Ingi Erluson
Sanogo á leið til Arsenal
Yaya Sanogo, leikmaður Auxerre í Frakklandi, staðhæfir það að hann sé á leið til Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Sanogo, sem er 20 ára gamall framherji, er einhver efnilegasti framherji Frakklands um þessar mundir, en samningur hans við Auxerre rennur út í sumar og hafa því mörg lið verið á höttunum á eftir honum.

Arsenal hefur verið talinn líklegasti áfangastaður kappans, en hann hefur nú sjálfur staðfest að hann sé á leiðinni til Lundúna og kemur til með að spila með Arsenal á næstu leiktíð.

,,Arsenal gæti verið frábært félag fyrir mig. Ég skoraði níu mörk fyrir Auxerre á þessari leiktíð og ég held að ég gæti bætt leik minn á Englandi," sagði Sanogo.

,,Ég er ánægður með að feta í fótspor Abou Diaby, sem kom í gegnum unglingastarf Auxerre," sagði Sanogo ennfremur.
Slapp
banner
banner