Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Þórarinn Ingi og Gummi Tóta skoruðu fyrir Sarpsborg
Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson voru á skotskónum í dag
Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson voru á skotskónum í dag
Mynd: Eyjafréttir
Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson, leikmenn Sarpsborg í Noregi, gerðu sér lítið fyrir og skoruðu er liðið gerði 3-3 jafntefli við Valerenga í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Þórarinn Ingi jafnaði metin á 38. mínútu leiksins, en Morten Berre hafði komið gestunum yfir. Berre kom Valerenga aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks, en aftur var það íslenskur leikmaður sem jafnaði metin.

Að þessu sinni var það Guðmundur Þórarinsson, en hann hefur verið á eldi síðustu vikur og var þetta hans þriðja mark á 2 vikum.

Guðmundur og Þórarinn Ingi spiluðu báðir allan leikinn í liði Sarpsborg en Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Haraldur Björnsson komu ekki við sögu.

Sarpsborg er í níunda sæti eftir ellefu leiki með 14 stig, en Valerenga í ellefta sæti með 13 stig.
Slapp
banner
banner