ÍA fékk sín fyrstu stig í Pepsi-deildinni þegar liðið vann Fram 2-0. Mörk sitthvorum megin við hálfleikinn gerðu út um Framliðið sem hafði verið mun beittara fram að fyrra markinu með talsverðum meðvindi.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Fram
„Þeir láu á okkur í nokkrar mínútur en annars voru þetta skot lengst utan af velli. Mér fannst ekki stafa nein hætta af þeim þannig," sagði Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir leikinn.
„Eftir að við náum inn öðru marki fannst mér þetta aldrei í hættu. Strákarnir lögðu sig virkilega fram í leikinn. Mér fannst liðsheildin standa sig vel."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.























