Tony Pulis er við það að hætta sem knattspyrnustjóri Stoke samkvæmt fréttum frá Englandi.
Pulis fundaði með Peter Coates formanni Stoke í morgun og nú er talið að hann sé á förum frá félaginu.
Pulis fundaði með Peter Coates formanni Stoke í morgun og nú er talið að hann sé á förum frá félaginu.
Pulis kom Stoke upp í ensku úrvalsdeildina árið 2008 og liðið hefur haldið sæti sínu síðan þá.
Leikstíll Stoke hefur ekki heillað marga undanfarin ár og í vetur urðu stuðningsmenn félagsins meira að segja þreyttir á honum.
Þrátt fyrir erfiða mánuði á síðari hluta tímabilsins endaði Stoke að lokum í þrettánda sæti úrvalsdeildarinnar.




