Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 11:00
Magnús Már Einarsson
Vilarrubi: Jákvætt fyrir spænska boltann að Mourinho fari
Carles Vilarrubi, varaforseti Barcelona, segist fagna því að Jose Mourinho sé á förum frá Real Madrid.

Í gær var staðfest að Mourinho muni hætta hjá Real Madrid í sumar en líklegt er að hann taki við Chelsea á nýjan leik.

Vilarrubi segist ekki eiga eftir að sakna Mourinho úr spænska boltanum.

,,Núna get ég sagt það, Mourinho hefur verið plága," sagði Vilarrubi.

,,Það er jákvætt fyrir spænskan fótbolta að sjá hann fara því hann hefur skapað neikvætt andrúmsloft."
Slapp
banner