Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. maí 2013 20:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
West Ham kemst að samkomulagi um kaup á Andy Carroll
West Ham hefur komist að samkomulagi við Liverpool um kaupverð á Andy Carroll.

Carroll var í láni hjá West Ham á nýliðnu tímabili en félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð upp á 15 milljónir punda.

Hinn 24 ára gamli Carroll þarf núna að taka sjálfur ákvörðun um framtíð sína.

Ef Carroll hafnar félaginu er líklegt að West Ham reyni að krækja í Wilfired Bony framherja Vitesse Arnhem.

Liverpool keypti Caroll á metfé í janúar 2011 eða 35 milljónir punda.
Slapp
banner
banner