Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 21. maí 2015 22:07
Magnús Valur Böðvarsson
4. deild: Heiðar Helgu skoraði fyrir Skautafélagið
Heiðar Helguson skoraði fyrir SR
Heiðar Helguson skoraði fyrir SR
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í 4.deild karla í kvöld en þetta eru fyrsti leikir liðanna. Hvíti Riddarinn sigraði Skautafélag Reykjavíkur í hörkuleik þar sem sigurmarkið kom mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma. Heiðar Helguson fyrrverandi landsliðsmaður skoraði fyrir SR í leiknum.

Þá sigraði Mídas lið Vatnaliljanna en þessi lið mættust í bikarnum fyrir nokkrum vikum þar sem Vatnaliljurnar höfðu betur.

D - riðill

Hvíti Riddarinn 4 - 3 SR

1-0 Aron Elfar Jónsson(3')
1-1 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (18')
2-1 Haukur Eyþórsson (20')
2-2 Heiðar Helguson (55')
3-2 Haukur Eyþórsson (73')
3-3 Haraldur Hróðmarsson (84')
4-3 Elmar Snær Hilmarsson (89')

B - riðill

Mídas 2 - 0 Vatnaliljur

1-0 Sigurður Ólafur Kjartansson (9')
2-0 Grímur Gunnarsson (76')


Athugasemdir
banner