Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 21. maí 2015 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Bastian Schweinsteiger orðaður við Manchester United
Bastian Schweinsteiger hefur spilað með Bayern allan ferilinn.
Bastian Schweinsteiger hefur spilað með Bayern allan ferilinn.
Mynd: Getty Images
Louis Van Gaal, stjóri Manchester United, hefur áhuga á að fá þýska landsliðsmanninn Bastian Schweinsteiger frá FC Bayern.

Þessi þrítugi leikmaður er sagður vera opinn fyrir því að fara til United, en hann lék undir stjórn Van Gaal hjá Bayern á árunum 2009 til 2011 og var samband þeirra gott.

Van Gaal vill fá Schweinsteiger til liðsins þar sem hann myndi færa liðinu nauðsynlega reynslu á miðsvæðinu fyrir Meistaradeildina á næstu leiktíð.

Schweinsteiger hefur spilað með Bayern allan sinn feril og á að baki 500 leiki, auk þess sem hann varð heimsmeistari með Þjóðverjum á síðasta ári.

Hann á einungis ár eftir af samningi sínum og gæti United fengið hann fyrir minna en 10 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner