Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. maí 2015 11:07
Elvar Geir Magnússon
Kemur í ljós með Hauk Pál í dag - „Bar sig vel áðan"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, fór meiddur af velli í fyrri hálfleik þegar Valur tapaði 1-0 fyrir Breiðabliki á Kópavogsvellinum.

Útlitið var ekki gott í gærkvöldi en menn eru bjartsýnni í dag segir Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals.

„Hann bar sig vel áðan og líður betur í dag en maður bjóst við. Hann fer til sjúkraþjálfara í dag og þá kemur þetta betur í ljós. Hann fékk högg á hnéð og þetta er spurning um hvort það hafi komið snúningur á liðband," segir Sigurbjörn.

Valsmenn eru í níunda sæti Pepsi-deildarinnar eftir fjórar umferðir en þeir mæta Fjölni á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner