Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. maí 2015 20:03
Daníel Freyr Jónsson
Sara Björk spilaði í stórsigri
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson - KSÍ
Sænska meistaraliðið Rosengård átti í engum vandræðum með Kristianstad þegar liðin mættust í sjöundu umferð sænsku deildarinnar.

Lokatölur urðu 7-0 fyrir meistarana þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan leikinn, en hún átti eina stoðsendingu.

Þær Elísa Viðarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir spiluðu allan leikinn fyrir Kristianstad og á hliðarlínunni stóð Elísabet Gunnarsdóttir sem stýrir liðinu.

Glódís Perla Viggósdóttir lék síðan allan leikinn í 2-1 sigri Eskilstuna á Örebrö.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner