Sigurður Jónsson, þjálfari Kára, var ekkert allt of ánægður með að fá Fjarðabyggð í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Kári leikur í 3. deild en liðið þarf að fara í langt ferðalag á Eskifjörð í bikarnum.
„Vill fa að vita hver dró þessa skitu upp. Sanngjarnt bara að sa sami borgi private jet a mannskapinn," sagði Sigurður léttur í bragði á Twitter.

Siggi Jóns og lærisveinar hans í Kára unnu Víði Garði örugglega í fyrstu umferðinni í 3. deildinni um síðustu helgi.
Fjarðabyggð leikur í 1. deildinni en liðið sigraði Leikni Fáskrúðsfirði í vítaspyrnukeppni í Borgunarbikarnum í vikunni. Á sama tíma sigraði Kári síðan Örninn í framlengdum leik.
@Fotboltinet @KariAkranes vill fa að vita hver dró þessa skitu upp. Sanngjarnt bara að sa sami borgi private jet a mannskapinn. 😀👍
— Siggi Jonsson (@JonssonSiggi) May 21, 2015
Athugasemdir