Atli Viðar er kominn með 100 mörk en neitaði viðtali þar sem leikmenn FH settu Fótbolta.net og 433.is í fjölmiðlabann.
Það var heil umferð í Pepsi-deildinni í gær, FH-ingar settu tvo fjölmiðla í fjölmiðlabann og svo var dregið í bikarnum. Það er alltaf líf og fjör undir kassamerkinu #fotboltinet en allar færslurnar í pakka dagsins eru með þeirri merkingu.
Hallgrímur Indriðason, fréttamaður RÚV:
Smá PR-kennsla fyrir FH. Það kemur aldrei vel út að neita fjölmiðli um viðtal af því að mönnum mislíkar fréttaflutningur #fotboltinet
Styrmir Sigurðsson, fótboltaáhugamaður:
.Net með 2 FH-inga í liði umferðinnar. Hef það eftir góðum heimildum að þeir gefi ekki kost á sér í liðið #fotboltinet
Jóhann Gunnar Einarsson, handboltamaður:
Það sem þessir miðlar gera fyrir fótboltamenn er ómetanlegt.Þetta diss fer í taugarnar à mér.#fotboltinet à að hætta að fjalla um FH à móti
Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fótbolta.net:
Með að neita að tala við fjölmiðla neitarðu að tala við stuðningsmennina. Fjölmiðill er bara milliliður. #FH #fotboltinet
Haukur V. Magnússon, fótboltaáhugamaður:
Synd að þetta fjölmiðlabann hjá FH þurfi að bitna á Atla Viðari sem var að ná stórmerkilegum áfanga. #fotboltinet #pepsi365 #100mörk #moneys
Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður FH:
Davíð Þór var yfirburðar maður í krikanum í kvöld svo virðist sem fréttaritarar hafi verið að horfa á annan leik #fotboltinet #egg
Kári Einarsson, leikmaður Berserkja:
Eru íslensku dómararnir í einhverri keppni um hver getur dæmt flest lögleg mörk af í Pepsídeildinni ? #fotboltinet #pepsi365 #fylkir-KR
Ásgeir Hilmarsson, fótboltaáhugamaður:
Dómararnir mestu vonbrigðin í Pepsi deildinni so far, þeir verða að fara að girða sig.. Búnir að vera mjög slappir. #pepsi365 #fotboltinet
Guðmundur Steinarsson, þjálfari Njarðvíkur:
Fylkir í Lautinni í bikarnum annað árið í röð. Árbæingar góðir heim að sækja. #fotboltinet
Viðar Ingi Pétursson, stuðningsmaður Víkings Ó.:
Þór away ..andstyggilega ósexý! Kem ekki. #fotboltinet
Jóhann Sigurðsson, Sportbloggið.net:
Það sem ég elska það hvað þetta enska landslið er hrikalega dapurt. #fotboltinet #TeamDeutschland
Þeir sem vilja bara gras á Íslandi eru á villigötum, vellirnir eru ennþá svona 20.maí. #Víkin #fotboltinet pic.twitter.com/FJPtPPuNU1
— Victor Ingi Olsen (@VictorIngiOlsen) May 20, 2015
Athugasemdir