Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
banner
   sun 21. maí 2017 18:48
Sævar Ólafsson
Ási Arnars: Seinni hálfleikurinn var okkar eign
Ásmundur Arnarson þjálfari Fram
Ásmundur Arnarson þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarson þjálfari Fram var að hluta til sáttur og ósáttur við niðurstöðu leiks Fram og Leiknis í kvöld. Fram liðið fór inn til leikhlés tveimur mörkum undir en vann sig til baka og jöfnuðu leikinn undir lokin.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  2 Fram

Mér fannst við byrja leikinn frekar illa - vorum svoldið á hælunum og það vantaði kraftinn í okkur sem hefur einkennt okkur í síðustu leikjum" sagði Ásmundur Arnarsson eftir jafntefli við Fram

"Við erum búnir að koma okkur í mjög erfiða stöðu en ég er ánægður með það hvernig við komum til baka. Við hrærðum aðeins í liðinu og síðan gerðum við náttúrulega tvær skiptingar. Við þurftum aðeins að hræra í þessu og við höfum góða breidd í hópnum, það eru menn fyrir utan sem geta breytt leikjunum og ég held það hafi gerst í dag"

Einkennilegt atvik átti sér stað þegar Framliðið skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Leiknisliðið geystist upp völlinn og skoraði mark; Já við skorum að því er virðist löglegt mark og allir rjúka úr stöðu til að fagna en dæmd er rangstað og þeir refsa okkur illlega og keyra á okkur - það er ákveðið reynsluleysi þar
Athugasemdir
banner
banner