Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mán 21. maí 2018 21:53
Kristófer Jónsson
Almarr Ormars: Hefðum getað lent 4-0 undir í fyrri hálfleik
Almarr hefur reynst Fjölnismönnum mikilvægur
Almarr hefur reynst Fjölnismönnum mikilvægur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Almarr Ormarsson, leikmaður Fjölnis, spilaði frábærlega þegar að hans menn mættu KR á Extra-vellinum í dag. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.

„Auðvitað vill maður alltaf taka þrjú stig á heimavelli en miðað við hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik megum við teljast heppnir að sleppa með stig. Við hefðum hæglega getað lent 4-0 undir." sagði Almarr beint eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 KR

Fjölnismenn komust yfir með marki Arnórs Breka þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en eins og Almarr benti réttilega á var það þvert gegn gangi leiksins.

„Í seinni hálfleik erum við að spila fínt en gerum aulaleg mistök í markinu þeirra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að við töpum niður forystu. Við eigum ennþá eftir að halda hreinu og það er erfiðara að safna stigum þannig,."

Almarr hefur komið vel inní Fjölnis liðið og kann hann mjög vel við sig í Grafarvoginum.

„Mér líður vel hérna. Það kominn flottur grillpallur hérna og fín stemmning þannig þetta er bara flott." sagði Almarr að lokum.

Nánar er rætt við Almarr í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner