mán 21. maí 2018 18:30
Ingólfur Stefánsson
Cazorla yfirgefur Arsenal í sumar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hafa staðfest það að Santi Cazorla muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Spánverjinn skoraði 29 mörk í 180 leikjum fyrir Arsenal en ferill hans hjá liðinu hefur einkennst af miklum meiðslavandræðum undanfarin ár.

Cazorla lék síðast fyrir Arsenal í október árið 2016 og á tímabili var óttast að hann myndi aldrei spila fótbolta á ný.

Þessi 33 ára miðjumaður gekk til liðs við Arsenal frá Malaga árið 2012. Hann hefur æft með liðinu undanfarnar vikur en nú er ljóst að hann hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner