Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 21. maí 2018 18:15
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Annar sigur Start kominn í hús
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Flóki Finnbogason lék allan leikinn í 1-0 sigri Start gegn Bodo/Glimt í efstu deild í norska boltanum í dag. Aron Sigurðarson var á bekknum.

Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 69 mínúturnar í tapi Vålerenga á meðan Emil Pálsson lék fyrstu 64 í tapi Sandefjord.

Start og Sandefjord eru á botni deildarinnar eftir ellefu umferðir en Vålerenga er í sjötta sæti.

Orri Sigurður Ómarsson lék þá allan leikinn í góðum 3-0 sigri Ham-Kam gegn Floro í B-deildinni.

Orri er á láni hjá Ham-Kam og er liðið í neðri hluta deildarinnar, með tíu stig eftir níu umferðir.

Start 1 - 0 Bodo/Glimt
1-0 E. Borufsen ('7)

Tromso 3 - 0 Vålerenga
1-0 K. Antonsen ('7)
2-0 S. Wangberg ('45)
3-0 D. Berntsen ('79)

Sandefjord 0 - 1 Sarpsborg
0-1 O. Halvorsen ('44, víti)

Ham-Kam 3 - 0 Floro
1-0 P. Moen ('70)
2-0 I. Running ('71)
3-0 E. Midtskogen ('84)
Athugasemdir
banner
banner
banner