Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 21. maí 2018 22:02
Kristófer Jónsson
Óli Palli: Hefði viljað vera með fleiri stig
Óli Palli var ánægður með stigið
Óli Palli var ánægður með stigið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Páll Snorrason, þjálfari Fjölnis, var ögn svekktur eftir jafntefli sinna manna gegn KR í dag.

„Fyrstu viðbrögð eru þau að ég hefði viljað vinna leikinn en eftir fyrsta hálftímann hjá okkur verð ég að vera ánægður með að fá stig hérna í dag." sagði Óli Palli eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  1 KR

Fjölnismenn mættu ekki til leiks fyrsta hálftímann en eftir mark Arnórs Breka tóku þeir öll völd á vellinum.

„Ég í rauninni skil ekki hvernig við vorum ekki fjórum mörkum undir eftir hálftíma leik en svo skorum við þetta mark sem að virtist kveikja svolítið í okkur."

Fjölnismenn eru með sex stig eftir fimm umferðir og hefur liðið gert þrjú jafntefli. Óli Palli er ekki nógu sáttur með stigasöfnunina.

„Ég hefði viljað vera með fleiri stig á þessum tímapunkti en svona er fótboltinn. Við erum með sex stig og við verðum að vinna með það." sagði Óli Palli að lokum.

Nánar er rætt við Óla Palla í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner