Sindri Snær Magnússon fyrirliði ÍBV var þokkalega sáttur með stigið markalaust jafntefli við FH í Vestmanneyjum í dag.
„Já, þokkalega ánægður. Vildum þrjú stigin í dag en það gékk því miður ekki."
Aðspurður um spilamennskuna og hvernig leikurinn þróaðist sagði Sindri:
„Þeir náðu að setja boltann svolítið fyrir aftan okkur. Við vorum að hlaupa svolítið í áttina að markinu okkar. Við lentum í veseni en brugðumst ágætlega við því og vorum eins og þú segir í svona fimmtán mínútur að átta okkur hvað þeir ætluðu að gera."
Deildin er að verða sterkari og sterkari og hafði Sindri þetta um það að segja:
„Deildin er klárlega sterkari, það er fullt af góðum leikmönnum. Margir að koma heim úr atvinnumennsku, þannig deildin er klárlega betri en hún hefur verið. "

Athugasemdir