Í dag var landsliðshópur Soánverja fyrir HM í Rússlandi opinberaður. Magnað er hversu öflugir leikmenn sitja eftir með sárt ennið og voru ekki valdir í hópinn. Mirror setti saman úrvalslið Spánverja sem ekki fara á HM.
Markvörður: Iker Casillas - Þessi 37 ára markvörður er ekki hættur að gefa kost á sér í landsliðið en hann vann portúgölsku deildina með Portúgal.
Hægri bakvörður: Hector Bellerín - Hefur ekki átt sitt besta tímabil en gæðin eru svo sannarlega til staðar.
Miðvörður: Marc Bartra - Fór til Real Betis frá Dortmund í janúar. Með Gerard Pique og Sergio Ramos er alltaf ljóst að það er erfitt fyrir miðverði að fá pláss.
Vinstri bakvörður: Marcos Alonso - Er væntanlega mjög svekktur yfir því að hafa ekki komist í hópinn eftir öflugt tímabil með Chelsea. Var valinn í úrvalslið tímabilsins.
Miðjumaður: Cesc Fabregas - Spilaði allan leikinn þegar Chelsea vann Manchester United í úrslitaleik enska bikarsins.
Vinstri kantur: Suso - Þrátt fyrir að AC Milan hefur átt erfitt tímabil þá hefur Suso verið öflugur.
Sóknarmiðjumaður: Juan Mata - Ekki er pláss fyrir Mata en menn eins og Isco og David Silva ýta honum út.
Sóknarmaður: Alvaro Morata - Fyrir ári síðan stefndi ekki í neitt annað en að Morata færi á HM. Hefur ekki náð sér almennilega á strik með Chelsea og það hefur reynst dýrkeypt.
Athugasemdir