Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður FH, fékk að líta beint rautt spjald í leik FH og Breiðabliks sem endaði 1-1.
Bjarni Þór þótti fara of hátt með takkana að mati dómarans og fékk beint rautt spjald fyrir, en FH svöruðu áfallinu með jöfnunarmarki á lokamínútu leiksins.
Kassim Doumbia skoraði jöfnunarmarkið en Bjarni hafði fengið rauða spjaldið skömmu áður.
Oliver Sigurjónsson varð fyrir tæklingunni frá Bjarna en hann birti eftir leikinn í kvöld mynd af rispaðri hönd sinni á Twitter.
Oliver skrifaði: „Ef einhver var í vafa hvort þetta var rautt... #pepsi"
Hér að neðan má sjá Twitter færslu Olivers og mynd af hendinni hans eftir leik.
Ef einhver var í vafa hvort þetta var rautt... #pepsi pic.twitter.com/ZOXHl4IL8B
— Oliver Sigurjónsson (@OSigurjonsson) June 21, 2015
Athugasemdir