Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 21. júní 2017 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hirving "Chucky" Lozano til PSV (Staðfest)
Lozano gerði sex ára samning við PSV.
Lozano gerði sex ára samning við PSV.
Mynd: Getty Images
PSV Eindhoven hefur gengið frá kaupum á mexíkóska kantmanninum Hirving Chucky Lozano.

Hinn 21 árs gamli Lozano yfirgaf herbúðir Mexíkó í Álfukeppninni á mánudag og ferðaðist til Eindhoven til að fara í læknisskoðun.

Hann skrifaði undir sex ára samning við PSV.

Lozano var á dögunum orðaður við Manchester City, en síðasta sumar var hann mikið í blöðunum þar sem nágrannar City í Manchester United höfðu víst mikinn áhuga á honum.

Lozano kemur til PSV frá mexíkóska liðinu Pachua.

„Ég er mjög ánægður að okkur hafi tekist þetta á endanum. Það tók meira en hálft ár að klára þetta," Marcel Brands, yfirmaður knattspyrnumála hjá PSV, eftir að hafa landað Lozano.



Athugasemdir
banner
banner