mið 21. júní 2017 16:21
Elvar Geir Magnússon
Januzaj á leið til Real Sociedad
Januzaj á sex A-landsleiki fyrir Belga.
Januzaj á sex A-landsleiki fyrir Belga.
Mynd: Getty Images
France Football segir að Real Sociedad hafi náð samkomulagi við Manchester United um kaupverðið á Belganum Adnan Januzaj.

Spænska félagið á þó eftir að semja við Januzaj um kaup og kjör.

Þessi 22 ára leikmaður var gríðarlegt efni þegar United fékk hann til sín frá Anderlecht 2011.

Hann hefur þó átt erfitt með að stíga skrefið til fulls. Náði ekki að sanna sig hjá United og átti lánsdvalir hjá Borussia Dortmund og svo Sunderland á síðasta tímabili án þess að ná að láta almennilega að sér kveða.

Spurning er hvort Real Sociedad sé rétti staðurinn fyrir Januzaj til að finna sig. Liðið hafnaði í sjötta sæti La Liga á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner