Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. júní 2017 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Sam Baldock með nýjan samning við Brighton
Baldock fagnar marki með Brighton í vetur
Baldock fagnar marki með Brighton í vetur
Mynd: Getty Images
Sam Baldock, sóknarmaður Brighton, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið eða til sumarsins 2020.

Hinn 28 ára gamli Englendingur skoraði tólf mörk til að hjálpa Brighton liðinu í að komast upp í ensku úrvalsdeildina á afstaðinni leiktíð. Fyrri samningur hans átti að renna út við enda næstu leiktíðar.

„Síðasta leiktíð var líklega hápunktur ferils míns og ég vona að við getum haldið áfram að bæta okkur og fest okkur í sessi í ensku úrvalsdeildinni," sagði hann við heimasíðu Brighton eftir undirritun samningsins.

Baldock hefur spilað 78 leiki fyrir Brighton og skoraði í þeim 18 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner