Jiangsu Suning varð í dag bikarmeistari í kvennaflokki í Kína þegar liðið lagði Changsun.
Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Jiangsu vann 3-1 í vítaspyrnukeppni.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari Jiangsu og Daði Rafnsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Jiangsu vann 3-1 í vítaspyrnukeppni.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari Jiangsu og Daði Rafnsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Þeir tóku til starfa í Kína í byrjun árs en Sigurður Ragnar var síðast aðstoðarþjálfari Lilleström í Noregi á meðan Daði starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki.
Chinese FA Champions! Jiangsu Suning... pic.twitter.com/Kd8oDib8kS
— Daði Rafnsson (@dadirafnsson) June 21, 2017
Athugasemdir