Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 21. júní 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Verður byrjunarlið Liverpool svona næsta vetur?
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Twitter
Sky Sports veltir því fyrir sér í dag hvernig byrjunarlið Liverpool verði á næsta tímabili.

Liverpool er að landa Mohamed Salah frá Roma en hann verður dýrastur í sögu félagsins. Framherjinn ungi Dominic Solanke er einnig að koma frá Chelsea.

Sky telur að Stefan De Vrij, varnarmaður Lazio, eigi eftir að bætast í hópinn fyrir næsta tímabil sem og vinstri bakverðirnir ungu Andrew Robertson (Hull) og Ryan Sessegnon (Fulham).

Á móti kemur þá gæti Liverpool selt Mamadou Sakho á 30 milljónir punda, Alberto Moreno á tólf milljónir punda og Lazar Markovic á 20 milljónir punda.

Hér til hliðar má sjá mynd af mögulegu liði Liverpool að mati Sky.
Athugasemdir
banner
banner