„Væntingarnar í Nígeríu eru minni eftir tapið gegn Króatíu. Ekki út af tapinu heldur hvernig það var," segir Calvin Onwuka, íþróttafréttamaður hjá aclsports.com, um leikinn gegn Íslandi á morgun.
„Ísland spilaði mjög vel gegn Argentínu. Ísland er með mjög sterkt lið í föstum leikatriðum á meðan Nígería hefur ekki staðið sig vel þar. Fólk hefur áhyggjur af því."
Þegar Calvin var spurður út í fótboltaáhugann í Nígeríu fór hann einfaldlega að skellihlægja. „Ég get ekki lýst því hversu stórt nígeríska landsliðið er. Allt í landinu stoppar þegar leikir eru í gangi," sagði Calvin sem er hæfilega bjartsýnn fyrir morgundaginn.
„Ég tek jafntefli núna en ef Nígería skorar fyrst þá vinnum við," sagði Calvin að lokum.
Athugasemdir