Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 21. júní 2018 14:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keyrðu til Rússlands á Lödu Sport og þurfa að halda blaðamannafundi
Icelandair
Rússarnir eru hrifnir af bílnum.
Rússarnir eru hrifnir af bílnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagarnir Kristbjörn Hilmir Kjartansson og Grétar Jónsson fóru aðra leið til Rússlands en flestir aðrir stuðningsmenn íslenska landsliðsins. Þeir ákváðu að keyra yfir til Rússlands á Lödu Sport bifreið sem skartar fánalitum Íslands.

Þeir lögðu af stað 5. júní og eru búnir að keyra í gegnum Þýskaland, Pólland, Litháen og Lettland til að komast til Rússlands. Þeir eru núna staddir í Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu á morgun.

„Það hefur gengið stórvel, við höfum ekki átt í neinum stórvægilegum vandræðum," sögðu þeir félagar við Fótbolta.net í dag. Þeir lentu í vandræðum í Moskvu þegar kælikerfið hætti að virka. Það var lagað og bíllinn er kominn á fulla ferð núna.

„Þetta hefur vekið töluvert meiri athygli en við bjuggumst nokkurn tímann við. Við vonuðumst þannig séð ekki eftir athygli en Rússinn er búinn að taka þvílíkt vel í þetta. Á endanum þurftum við að boða til blaðamannafundar í Moskvu og hér í Volgograd. Við munum gera það sama í Rostov."

„Það eru nokkrir fjölmiðlar sem vilja fá okkur til Moskvu eftir. Þegar Ísland kemst áfram þá förum við kannski þangað aftur."

Þeir félagar spá Íslandi auðvitað sigri á morgun gegn Nígeríu en viðtalið í heild sinni er hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner