Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. júní 2018 09:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Leikmenn Dana flugu liðsfélaga sínum heim til að sjá nýfætt barnið sitt
Gleðin er mikil hjá Knudsen þessa dagana
Gleðin er mikil hjá Knudsen þessa dagana
Mynd: Getty Images
Liðsmenn Dana borguðu einkaflugvél fyrir varnarmanninn Jonas Knudsen eftir sigurinn á Perú svo hann gæti flogið heim og hitt nýfædda dóttur sína.

Eiginkona Knudsen, hún Trine fæddi dóttur þeirra nokkrum vikum fyrir tímann, en Knudsen var þá mættur til Rússlands í undirbúning fyrir heimsmeistaramótið.

„Við viljum horfa á mannlegu hliðina," sagði markvörðurinn Kasper Schmeichel.

„Það eru margir feður í hópnum hjá okkur. Maður verður að muna að við erum mennskir, ásamt því að vera fótboltamenn."

„Sem faðir sjálfur get ég ekki ímyndað mér hversu erfitt það var fyrir Knudsen að fá þessi skilaboð og geta ekki verið á staðnum. Við vildum gera hvað sem við gætum svo hann gæti séð dóttur sína."

Danmörk vann Perú 1-0 á laugardag og fór Knudsen, sem er leikmaður Ipswich strax eftir leik að hitta dóttur sína. Hann kom svo aftur til móts við danska hópinn á laugardag.

Danmörk leikur gegn Ástralíu á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner