Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 21. júní 2018 22:02
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Lineker: Man ekki eftir Argentínu svona lélegum
Jorge Sampaoli er þjálfari Argentínu
Jorge Sampaoli er þjálfari Argentínu
Mynd: Getty Images
Sparkspekingurinn og fyrrum landsliðsmaður Englands, Gary Lineker segir á Twitter að hann muni ekki eftir svona lélegu liði hjá Argentínu.

Lineker þekki það vel að spila gegn Argentínu og spilaði hann í einum frægasta leik allra tíma, þegar England tapaði 2-1 gegn Argentínu á HM 1986.

Lineker skoraði mark Englands í þeim leik en það muna færri eftir því. Heldur muna allir eftir marki aldarinnar og hönd guðs hjá Diego Maradona.

„Í öll þessi ár að horfa á Argentínu, þá man ég ekki eftir svona lélegu liði hjá þeim," segir Lineker.

Þá hrósar Lineker einnig Modric en hann var frábær í leiknum í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner