Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 21. júní 2018 08:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Neymar verður með gegn Kosta Ríka
Neymar verður með á föstudag
Neymar verður með á föstudag
Mynd: Getty Images
Stjarna Brasilíumanna, Neymar verður með liðinu þegar það mætir Kosta Ríka í E-riðli á föstudag.

Neymar var með á æfingu Brasilíu í dag en hann haltraði af æfingu liðsins í gær eftir að hafa fengið högg á hægri ökklann.

Æfing Brasilíu í dag var lokuð fyrir fjölmiðlum en knattspyrnusamband Brasilíu sagði að Neymar hafi tekið fullan þátt á æfingu liðsins í dag.

Neymar var frá í þrjá mánuði á síðasta tímabili vegna meiðsla í hægri fæti og voru einhverjir smeykir um að sömu meiðsli hefðu tekið upp á sig aftur.

Brasilía gerði jafntefli við Sviss í fyrsta leik en Kosta Ríka tapaði gegn Serbíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner