Inter Milan er í viðræðum við Chelsea um kaup á varnarmanninum Davide Zappacosta samkvæmt Sky á Ítalíu.
Umboðsmaður leikmannsins hefur hitt fulltrúa Inter Milan í Mílanóborg.
Umboðsmaður leikmannsins hefur hitt fulltrúa Inter Milan í Mílanóborg.
Það er ekki nema ár síðan Zappacosta gekk til liðs við Chelsea.
Zappacosta var keyptur á yfir 20 milljónir punda en hann verður seldur á 17,5 milljónir punda.
Það gæti einnig verið í myndinni að Ítalinn fari á láni til Ítalíu en hann lék 22 leiki fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir