Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 21. júlí 2014 15:30
Arnar Daði Arnarsson
Bríet: Vonast til að dæma stærstu kvennaleikina
Bríet er hér í neðri röð til vinstri.
Bríet er hér í neðri röð til vinstri.
Mynd: Hilmar Þór Guðmundsson - KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Í dag var lið umferða 1-9 í Pepsi-deild kvenna kunngjört, ásamt þjálfara, dómara og stuðningsmönnum. Bríet Bragadóttir var valin besti dómari fyrri umferðar Pepsi-deildar kvenna.

,,Það er gaman að fá svona viðurkenningu. Fyrri helmingurinn hefur gengið vel og ég vona að við allir dómarnir náum að standa okkur vel seinni helminginn. Þetta kom mér nokkuð á óvart, það hafa margir dómarar staðið sig frábærlega í sumar. Maður hefur ekki heyrt mikið af kvörtunum. Ég er mjög sátt með mína frammistöðu," sagði Bríet sem segir að leikmenn kippi sér ekkert upp við það þó það sé kvenmaður að dæma.

,,Eini munurinn er að þær þekkja mig kannski betur. Ég hef verið að spila með einhverjum leikmönnum hér og þar. Við erum fámennar konurnar sem eru að dæma og við viljum fá sem flestar til liðs við okkur. Við sem erum að dæma núna eru mjög duglegar og stöndum okkur vel. Þetta er frábært tækifæri til að hreyfa sig og halda sér áfram í boltanum. Þó maður hætti að spila eins og við gerum flestar um tvítugsaldur þó sumar haldi áfram, þá getum við fært okkur inn á önnur svið fótboltans, haldið áfram að dæma og notið þess að vera á vellinum áfram," sagði Bríet sem segist vera með sín markmið.

,,Ég vonast til að dæma stærstu kvennaleikina á næstu árum," sagði besti dómari fyrri umferðar í Pepsi-deild kvenna að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner