Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júlí 2014 11:11
Magnús Már Einarsson
Denis Cardaklija tekur Fram hanskana
Denis Cardaklija.
Denis Cardaklija.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Denis Cardaklija hefur tekið fram hanskana á nýjan leik en hann hefur hafið æfingar með Fram.

Denis var varamarkvörður Fram frá 2011 til 2013 en hann hætti eftir síðasta tímabil.

Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram, gekk til liðs við Randers í síðustu viku en hinn 17 ára gamli Hörður Fannar Björgvinsson hefur varið mark liðsins í síðustu tveimur leikjum.

Denis hefur núna tekið fram hanskana en hann mun berjast við Hörð um markvarðarstöðuna hjá Fram.
Athugasemdir
banner
banner
banner