Micah Richards, leikmaður Manchester City á Englandi, vill fara til Liverpool eða Tottenham Hotspur á láni en þetta kemur fram á Liverpool Echo í kvöld.
Richards, sem er 26 ára gamall varnarmaður, er uppalinn hjá Manchester City en hann hefur leikið 244 leiki og skorað 9 mörk fyrir félagið.
Hann hefur þó átt erfitt uppdráttar hjá Manuel Pellegrini, stjóra Man City, en hann lék einungis tíu leiki á síðustu leiktíð.
Liverpool hefur haft áhuga á Richards í einhvern tíma en leikmaðurinn hefur áhuga á að ganga til liðs við liðið á láni.
Hann hefur einnig áhuga á því að fara til Tottenham á láni en Liverpool Echo greindi frá þessu í kvöld. Það ætti því að koma í ljós á næstu dögum hvað verður um þennan ágæta Englending.
Athugasemdir